Jólaball Siglfirðingafélagsins verður haldið laugardaginn 27. desember klukkan 15 í sal KFUM og K við Holtaveg. Um er að ræða árlegan og vinsælan viðburð sem ætlaður er allri fjölskyldunni og hefur lengi verið fastur liður í jólahaldi félagsins.
Hljómsveitin Fjörkálfarnir ásamt jólasveinum sér um skemmtun á ballinu og lofar nefndin notalegri stemningu fyrir bæði börn og fullorðna. Gestum verður boðið upp á heitt súkkulaði og vöfflur með rjóma og börnin fá nammigjöf frá sjálfum jólasveininum.
Allir eru hjartanlega velkomnir á jólaballið og hvetur jólaballsnefnd Siglfirðingafélagsins fólk til að fjölmenna og eiga saman notalega stund í aðdraganda áramóta.
Mynd: úr safni




