Tveir nýir leikmenn skrifuðu undir hjá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar í gær.

Hrannar Snær Magnússon er mættur aftur til síns heimafélags, Hrannar Snær spilaði á síðasta tímabili með KH á Hlíðarenda. Hrannar er fæddur árið 2001 og þrátt fyrir ungan aldur á hann orðið 24 meistaraflokks leiki fyrir KF og KH.

Framherjinn Sachem Wilson skrifaði einnig undir í gær. Sachem er fæddur árið 1994 og kemur frá Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði nám og spilaði fótbolta í Liberty University. Sachem spilaði síðast með Carrick Rangers sem spilar í efstu deild í Norður-Írlandi. Áður hefur hann verið að spila í efstu deildum í Slóveníu.

Hrannar Snær og Gunnlaugur Sigursveinsson við undirskriftina



Heimild og myndir: KF