Líkt og í fyrra hefur verið tekið saman yfirlit yfir það sem efst var á baugi á vettvangi Húnaþings vestra á nýliðnu ári.
Árið var að venju viðburðaríkt og þetta yfirlit er að sjálfsögðu ekki tæmandi yfir það sem gerðist í sveitarfélaginu, heldur byggir það á fréttum af heimasíðu sveitarfélagsins.
Húnaþing vestra hvetur íbúa og aðra velunnara sveitarfélagsins að senda ábendingar um fréttir og viðburði sem eiga erindi inn á heimasíðuna. Hér er til að mynda hægt að senda inn viðburð. Ábendingar um fréttir má senda á netfangið skrifstofa@hunathing.is
Yfirlitið er aðgengilegt á pdf formi hér.
















