Félag eldri borgara í Fjallabyggð boðar til þorrablóts sem haldið verður í Tjarnarborg laugardaginn 7. febrúar og hefst gleðin klukkan 19.00. Þorrablótið er ætlað félagsmönnum og öðrum 60 ára og eldri, en félagar frá Dalvík eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Á boðstólum verður hefðbundin þorraveisla sem kemur frá Fiskbúð Fjallabyggðar. Að borðhaldi loknu verður dagskráin með söng, dansi og sprelli undir styrkri stjórn Stúlla og Tóta, sem sjá til þess að stemmingin verði góð fram á kvöld.

Miðaverð er 9.000 krónur. Boðið verður upp á sætaferð frá Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði klukkan 18.30 og heimferð frá Tjarnarborg klukkan 23.00.

Skráningu þarf að ljúka fyrir 4. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veita Svava Jóhannsdóttir á Ólafsfirði í síma 893 2199 og Pálína Pálsdóttir á Siglufirði í síma 862 6385. Greiða má miðaverð með millifærslu inn á reikning Félags eldri borgara í Fjallabyggð, reikningsnúmer 0348-22-000785, kennitala 630394-2609.

Mynd: Félag eldri borgara í Fjallabyggð