Í dag sunnudaginn 11. júlí kl. 14:00 verður hin árlega sumarmessa haldin í Knappstaðakirkju í Fljótum.

Prestur er sr. Halla Rut Stefánsdóttir og Stefán Gíslason spilar undir almennan safnaðarsöng.

Hestamenn eru sérstaklega hvattir til að mæta til messu á fákum sínum.

Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi í kirkjugarðinum og eru allir velkomnir.

Sumarmessa í Knappsstaðakirkju
Boðið verður upp á kaffi í kirkjugarðinum að messu lokinni