Þátturinn Tíu Dropar er á dagskrá FM Trölla á sunnudögum kl. 10 – 12.

Nú eru Tröllahjónin Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason komin í hellinn sinn og senda þáttinn út í þráðbeinni útsendingu frá Studio I í Syðri-Glaumbæ sem er í afskekktu dalverpi á Gran Canaria fjarri mannabyggð og amstri.

Í þættinum verður frumflutningur á laginu Númi. Númi, sem lést í byrjun árs 2015, hefði orðið fertugur í ár og vildi fjölskylda hans minnast hans með þessu lagi og rætt verður við fjölskyldumeðlimi hans í tilefni útgáfunnar. Í þættinum verður einnig spjallað um heima og geima, uppskrift vikunnar verður á sínum stað og aldrei að vita hvað gerist fleira.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.