Húnaþing vestra veitir eftirfarandi stuðning í húsnæðismálum með hliðsjón af aðstæðum hvers og eins:
- Sérstakar húsaleigubætur
- Stuðningur vegna barna 15-17 ára sem leigja á heimavist/námsgörðum
- Stuðningur vegna námsmanna 18-20 ára sem ekki fá inni á heimavist eða námsgörðum.
- Lán vegna fyrirframgreiðslu húsaleigu og/eða tryggingar.
Endurnýja þarf eldri umsóknir um sérstakar húsaleigubætur fyrir hvert almanaks-/skólaár eða hverja önn.
Sótt er um í gegnum Íbúagátt Húnaþings vestra undir Fjölskyldusvið/félagsþjónustu.
Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi.



