Í gangi er könnun meðal íbúa Fjallabyggðar um viðhorf og upplifun af sögulegum opnum svæðum á Siglufirði. Könnunin er hluti af meistararitgerð Elvu Daggar Sverrisdóttur í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Markmið könnunarinnar er að safna upplýsingum um notkun, gæði og mikilvægi sögulegra opinna svæða, með sérstakri áherslu á Evanger-svæðið sem opið almenningsrými við sjóinn. Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast í fræðilegum tilgangi og geta lagt grunn að umræðu um framtíðarþróun og skipulag svæðanna.
Könnunin er nafnlaus og þátttaka er valkvæð. Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að taka þátt og koma á framfæri sínum sjónarmiðum.



