Þessi skemmtilega myndskreytta og magnaða “rollustíðssaga” frá áttunda áratug síðustu aldar, er óbeint framhald af sögunni um Fegrunarfélag Siglufjarðar o.fl. Þar var í lokin sögð saga af átökum garðeigenda á Siglufirði við Túlípana Móru, sem á þessum tíma var heimsfræg blómaáts kind, sem engar girðingar héldu úr nú ört fjölgandi blómagörðum bæjarbúa.
Sjá meira hér:
Skömmu eftir birtingu Fegrunarfélag Siglufjarðar o.fl. bárust undirrituðum bæði ljósmyndir og viðbótar frásögn frá hjónunum Elísabetu Vilborgu Jónsdóttur og Steinari Jónassyni, en þau eru betur þekkt í daglegu tali Siglfirðinga, sem Steinar og Vilborg á hótel Höfn.

Þau hjónin byggðu sér og sínum hús með mjög svo fallegum garði við Laugarveg 18, en við skulum byrja söguna á því að setja okkur vel inn í tíðarandann á Sigló á þessum árum og skoða sögusviðið, áður en við förum í lestur á skemmtilegi rölluraunasögu frá Vilborgu og Steinari.
Í næsta nágrenni býr Ásdís Magnea Guðlaugsdóttir við Laugarvegi 15 og þær vinkonurnar er frumkvöðlar varðandi stofnun Garðyrkjufélag Siglufjarðar 1976 . Vilborg er ekki bara áhugamanneskja um garðrækt, því hún er einnig góður ljósmyndari og hér neðar sjáum kinda ljósmynd frá Bretatúninu 1972 og einnig sjálfa forsíðu ljósmyndina í fullri stærð.
Hún tók þessar myndir sumarið 1972 og það var ekki svo óalgeng sjón að sjá bæði fjárhús og kindur og lömb á beit í miðjum bæ. Þessi hobbí fjárbúskapur bæjarbúa átti litla samleið með á þessum tíma ört vaxandi áhuga húsmæðra við að rækta blómagarða við sín heimahús.
ATH. Smelltu á mynd og hún birtist þér stærri.


Út frá stærðinni á t.d. “fjárhúsahverfinu” sem var staðsett í fjallshlíðinni ofan við Jónstúnið, sjáum við að sauðfjárbúskapur Siglfirðinga var verulegur á sínum tíma. Undirritaður hefur heyrt tölur um að þegar sem mest var, voru bæjarbúar með kannski 1.500 – 2000 kindur í fjárhúsum víðs vegar í firðinum fagra yfir vetrarmánuðina.

Lausagangurinn á sauðfé út um allan bæ, gat oft á tíðum farið verulega í taugarnar á bæjarbúum og einn ónefndur mér eldri vinur, sagði mér eftirfarandi rollu prakkarasögu, sem gerðist á Gránugötunni sumarið 1968, nánar tiltekið við gömlu Lögregluvarðstöðina:
“Á þessum tíma var engin lögguvakt á milli kl. 5 og 10 á morgnana, en sjálf forstofan var alltaf höfð opin. Rétt fyrir kl. 07.00, gengum við strákarnir fram á hóp af innanbæjar rollum, sem voru mættar fyrir framan Löggustöðina. Við rákum rollurnar þar inn í forstofuna og læstum.
Ástandið hefur ekki verið glæsilegt þegar þeir mættu kl. 10….
Sagan segir einnig, að það var ekki sett í gang nein lögreglurannsókn eftir þennan atburð… því að öllum líkindum voru það sjálfir lögregluþjónar bæjarins sem áttu þessar rollur.
En nú erum við komin í suðurbæinn um miðjan áttunda áratug síðustu aldar og á næstu myndum sjáum við sögu umhverfið við Laugarveg, séð m.a. frá garði góðra vina Vilborgar og Steinars sem bjuggu við Hafnartún 2.



Meira af “Túlípana Móru,” og fleiri kindum
Eina nótt fyrir 50+ árum, vöknuðum við hjónin á Laugarvegi 18, upp við mikið skrölt fyrir ofan húsið. Við þutum upp og litum út um gluggann í ganginum og eins og okkur grunaði voru komnar nokkrar rollur undir forystu “ Túlípana Móru”.
Þær voru mættar í garðinn hjá okkur og voru að ganga á bárujárnsplötum sem lágu á þeim parti lóðarinnar sem áætlaður var fyrir kartöflugarð og var meiningin, að hafa þar einnig Rabarbarahnausa, sem við vorum búin að fá vilyrði fyrir hjá, Ásdísi vinkonu minni, sem var mikil garðyrkjukona og átti einn af fallegustu görðunum á þeim tíma.
Ekki var við þetta unað og hringdi minn elskulegi á lögregluna og kvartaði yfir þessum óboðnu gestum, sem voru þá þegar búnir að hreinsa allt lauf af Brekkuvíðinum sem við höfðum plantað um vorið og virtist vera á góðri leið með að rótfesta sig og var orðinn fallegur.
Lögreglumennirnir sem voru á vakt, voru fljótir á staðinn.
– Þeir Bjarni (í Visnesi) og Jóhannes, (Þórðarson), fóru nú að smala rollunum saman og gekk það ekki greiðlega, því þær virtust una sér ágætlega í garðinum og voru ekkert á því að yfirgefa svæðið.

Ljósmyndari: Kristfinnur Guðjónsson.

Ljósmyndari: Kristfinnur Guðjónsson
Fleiri voru komnir til að hjálpa við smölunina og voru Ásdís (Laugarvegi 15) og Árni Theódór (Laugarvegi 20), nágrannar okkar, þar á meðal. Ekki man ég hverjir voru fleiri.
…En í látunum datt Bjarni og lenti á brjóstkassanum, þannig að hann braut rifbein. Hann var með lögregluflautuna í brjóstvasanum á lögreglu búningnum… Hans skýring. .. Ekki gott!
Lögregluþjónn slasast í átökum við handtöku á sauðfé….
(Hefði orðið ansi góð og spennandi fyrirsögn í gömlu góðu bæjarblöðunum í denn, ef þessi frásögn Vilborgar og Steinars hefði ná til þeirra, varðandi þessi röllustríðsátök á Laugarveginu. Innskot frá pistlahöfundi)
… Leikurinn endaði með því að rollurnar voru handteknar og reknar inn í bílskúrinn hjá okkur og ákveðið að þar yrðu þær þangað til eigandinn kæmi og sækti þær næsta dag.
Ekki var nú aðkoman í bílskúrinn glæsileg daginn eftir.
Ég var með þvottavélina í bílskúrnum og þar sem einhver hátíð hafði verið á hótelinu á laugardeginum, voru hvítu dúkarnir, -( sem ég var búin að hrista úr á gólfið, matarafgöngum og annað sem gjarnan dettur á dúkana), – í hrúgu í tveimur þvottabölum á gólfinu, auk þess sem ég var með bókakassa og annað dót á gólfinu.

Kindurnar, (þær voru 10 minnir mig?), höfðu greinilega farið upp í balana og var helmingurinn af dúkunum kominn á gólfið og voru hvítu dúkarnir mínir, úttrampaðir og útataðir í grænum skít eins og allt annað sem var í skúrnum.
Þetta varð nú aldeilis aukavinna fyrir mig að þvo dúkana -( ég þurfti að marg þvo þá, til að ná græna litnum úr þeim),- og þrífa bílskúrinn og allt sem var þar inni….
Fjáreigandinn kom daginn eftir og sótti rollurnar sínar.
Hann kvaddi Steinar með þessum orðum;
“Þakka þér fyrir Steinar minn!
Ég vissi að þú værir dýravinur.”
Kær kveðja
Elísabet Vilborg Jónsdóttir.
Höfundur samantektar og
stafræn gæða endurvinnsla ljósmynda:
Jón Ólafur Björgvinsson .
Sjá meira söguefni eftir sama höfund hér:
https://trolli.is/author/nonni/
Forsíðu ljósmynd:
Ljósmyndari: Elísabet Vilborg Jónsdóttir
Allar ljósmyndir eru birtar með leyfi frá ljósmyndaranum og Ljósmyndasafni Siglufjarðar.
Heimildir:
Vísað er í ýmsar heimildir í greinartexta.
