Leikritið „Með vífið í lúkunum” eftir Ray Cooney. verður sett á svið af Leikfélagi Fjallabyggðar og er frumsýning áætluð í mars.

Til stóð að setja upp verkið „Á frívaktinni” eftir Pétur Guðjónsson, en ekki hafðist að manna það verk.

Hið vinsæla farsaverk „Með vífið í lúkunum“ eftir breska leikskáldið Ray Cooney hefur í áratugi notið mikillar hylli á leiksviðum víða um heim. Verkið er þekkt fyrir hraða atburðarás, skarpa tímasetningu og flókna atburðarás þar sem misskilningur og óvæntar uppákomur ráða ferðinni.

Leikritið er eitt þekktasta verk höfundar, sem oft er nefndur meðal helstu meistara farsans í bresku leikhúsi.

Leikritið „Með vífið í lúkunum“ hefur fest sig í sessi sem klassískt gamanverk sem heldur áhorfendum á tánum allt til loka, svo íbúar Fjallabyggðar sem og aðrir unnendur leikhúss eiga von á góðu þegar Leikfélag Fjallabyggðar sýnir verkið.

Myndir: Vibekka Arnardóttir