Arion banki mun standa fyrir fræðslufundi um netsvik og netöryggi þriðjudaginn 10. febrúar klukkan 10:00 í Skálarhlíð á Siglufirði.

Á fundinum mun þjónustufulltrúi bankans fræða gesti um algengar aðferðir netsvikara og hvernig best sé að verjast slíkum brotum.

Markmið fundarins er að auka þekkingu fólks á stafrænum öryggismálum og styrkja einstaklinga til að verja sig sjálfa og sína nánustu. Í kynningu bankans er bent á að fræðsla sé ein besta vörnin gegn netsvikum.

Fundurinn er opinn öllum og eru áhugasamir hvattir til að mæta.