Heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðalána verður framlengd fram á mitt ár 2023 ef frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis verður samþykkt á Alþingi.

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi um framlengingu úrræðisins á Alþingi, en gildandi heimild rennur að óbreyttu út í sumar. Úrræðið hefur verið mjög vel nýtt frá því að bráðabirgðaákvæði um málið var fyrst sett í lög um mitt ár 2014, en þannig hafa að meðaltali um 22 þúsund manns fengið greiðslur inn á höfuðstól íbúðalána á mánuði í þau sjö ár sem úrræðið hefur verið í boði.

Alls hafa um 60 þúsund manns greitt séreign skattfrjálst inn á lán sín, en síðustu árin hafa alls um 160 milljarðar króna verið greiddir inn á lán einstaklinga með stuðningi stjórnvalda.

Árið 2015 var höfuðstóll verðtryggðra íbúðalána leiðréttur með 80 milljarða króna framlagi ríkissjóðs og við þetta bætast skattfrjálsar inngreiðslur séreignarsparnaðar á íbúðalán. Gert er ráð fyrir að allt að 24 milljarðar króna verði greiddir út til viðbótar inn á höfuðstól íbúðalána næstu tvö árin, hljóti frumvarpið brautargengi á Alþingi. Má því gera ráð fyrir að upphæðin verði komin í allt að 184 milljarða króna þegar framlenging bráðabirgðaákvæðisins fellur úr gildi um mitt ár 2023.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

“Úrræðið hefur gefist vel, reynst mikil kjarabót fyrir þúsundir Íslendinga og stuðlað að hraðari eignamyndun einstaklinga og fjölskyldna á húsnæðismarkaði. Með tilliti til þessa taldi ég rétt að koma til móts við óskir fjölda einstaklinga og hagsmunasamtaka um framlengingu þess, og ég treysti á að málið fái skjóta afgreiðslu á Alþingi.”

Skoða á vef Stjórnarráðsins
Forsíðumynd: Golli