Dalvíkurbyggð óskar eftir því að ungmenni í Dalvíkurbyggð á aldrinum 17-20 ára, sem sjá fyrir sér að verða án atvinnu í sumar skrái sig hjá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, það er að segja ef viðkomandi hefur áhuga á að koma í vinnu hjá Dalvíkurbyggð í sumar.

Verið er að kortleggja hversu stórt hlutfall ungmenna í Dalvíkurbyggð, sem eru í námi verður mögulega án atvinnu í sumar.

Þessi skráning er í tengslum við sumarstörf námsmanna sem stjórnvöld eru að setja af stað og er því mikilvægt hafa upplýsingar um fjölda sem er án atvinnu.

Skilyrði fyrir þátttöku í þessu átaki er að viðkomandi sé í námi núna á vorönn eða fari í nám í haust.

Ítrekað er að engin binding er við skráningu, eingöngu er verið að skoða stöðuna og tengja viðkomandi við okkur til að stytta biðtímann að geta hafið störf ef farið verður af stað með átaksverkefni.

Skráning fer fram hjá Gísla Rúnari, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á netfangið gislirunar@dalvikurbyggd.is eða í síma 863-4369.

Skráningarfrestur er til og með 15. maí.