Bikarmót í alpagreinum sem hófst í Skarðsdalnum í gær hefur verið aflýst vegna veðurs og lýkur því ekki með keppni í dag eins og ráðgert var. Leiðinda fræsingur hefur verið í dalnum og skefur hratt í brekkunum, sem gerir aðstæður erfiðar bæði fyrir keppendur og mótshaldara.

Mótið hófst með góðum fyrsta degi í gær, en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Aðstæður í Skarðsdal geta breyst hratt þegar hvessir og snjó ber á skömmum tíma, og var því tekin sú ákvörðun að aflýsa keppni með öryggi allra í huga.

Sjá einnig: Myndir: Sóley Birna opnaði mótið, glæsilegur dagur í Skarðsdal

Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvernig framhald verður á mótinu. Frekari upplýsingar verða væntanlega gefnar út þegar staðan hefur verið metin.

Meðfylgjandi mynd var tekin í morgun á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði.

Meðfylgjandi mynd var birt í morgun á Facebook-síðu Skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði.