Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, hyggjast verja allt að 50 milljónum króna í átaksverkefni vegna Covid-19. Á vefsíðu samtakanna, ssnv.is segir:


Ertu með góða hugmynd?

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl 2020 að verja allt að 50 milljónum  á næstu mánuðum í átaksverkefni vegna áhrifa Covid-19 til eflingar atvinnu- og menningarlífs á Norðurlandi vestra. Um er að ræða viðbótar fjármuni sem veitt er í sóknaráætlanir landshluta af hálfu ríkisins og samþykkt var með fjáraukalögum þann 30. mars, sem og fé samtakanna.

SSNV auglýsir því nú eftir hugmyndum að átaksverkefnum sem hægt væri að ráðast í hratt og örugglega með það að markmiði að efla atvinnu- og menningarlíf í landshlutanum.

Verkefnin þurfa að hafa skírskotun til Sóknaráætlunar Norðurlands vestra.

Hugmyndir skulu sendar í gegnum rafrænt form fyrir 25. apríl 2020. Ekki er tekið við hugmyndum eftir öðrum leiðum eða eftir þann tíma.

Við hvetjum íbúa á Norðurlandi vestra til að senda inn hugmyndir og stuðla þannig að eflingu landshlutans okkar á þessum undarlegum tímum sem við nú lifum.

Áfram Norðurland vestra.