Öskudagshátíð verður haldin í Íþróttahúsinu í Ólafsfirði í dag miðvikudaginn 18. febrúar 2026 frá klukkan 16:00 til 17:00. Viðburðurinn er ætlaður yngstu börnunum og fjölskyldum þeirra.

Boðið verður upp á leikjabraut fyrir yngstu börnin og hefðbundinn leik þar sem kötturinn er sleginn úr tunnunni. Foreldrafélag leikskóla stendur fyrir viðburðinum og eru allir velkomnir.

Boðið verður upp á rútuferð frá grunnskólanum á Siglufirði klukkan 15:50 og til baka frá íþróttahúsinu á Ólafsfirði klukkan 17:10.

Foreldrafélag Leikhóla stendur fyrir viðburðinum.