Lesendur Trölla.is hafa kosið Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði sem mann/félagasamtök ársins á Siglufirði.

Frá 14. desember gafst lesendum Trölla.is kostur á að tilnefna þá manneskju sem skarað hefur framúr á Siglufirði 2019 að þeirra mati. Fjöldi tilnefninga hefur borist og hlaut Björgunarsveitin Strákar flestar tilnefningar.

Magnús Magnússon formaður Stráka tók við viðurkenningarskjali og blómvendi ásamt félögum sínum frá Trölla.is.

Það bárust um 200 tilnefningar til Trölla.is, má segja að um 10% íbúa Fjallabyggðar hafa tekið þátt í vali á manni ársins.

Trölli.is mun innan tíðar birta frétt um aðra sem hlutu tilnefningar, og ummæli um viðkomandi.

Það sem skrifað var af lesendum til stuðnings tilnefningar hefur verið vel rökstutt og hér að neðan má sjá nokkrar færslur.

  • Eru hetjur.
  • Þeir standa vaktina allt árið, ávallt tilbúnir að aðstoða íbúa Fjallabyggðar.
  • Þau eru súperhetjur öll sem eitt!
  • Eiga það sannanlega skilið , alltaf…
  • Það er augljóst,vegna álags og frábærrar vinnu í vikunni sem er að líða.
  • Standa sig vel þegar þarf á þeim að halda.
  • Fyrir óeigingjarnt starf.
  • Þeir eru menn/konur sem leggja líf sitt í hættu til að halda okkur frá hættunni.
  • Standa alltaf vaktina sama hvað á gengur og vænta sér einskins i staðin.
  • Dugnaðarmenn og ósérhlífnir við að aðstoða samborgarana.
  • Fyrir elju, fórnfýsi og hugrekki.
  • Ómetanleg störf fyrir samfélagið.