Öflug björgunaraðgerð skilaði Vestra til Siglufjarðar

Togarinn Vestri lenti í erfiðleikum norðan við Kolbeinsey síðastliðinn föstudag þegar veiðarfæri fóru í skrúfu skipsins í leiðindaveðri og þungum sjó. Aðstæður á vettvangi voru krefjandi en brugðist var skjótt við og fór togarinn Björgúlfur EA Vestra til aðstoðar og dró skipið til hafnar á Siglufirði.

Í tilkynningu frá Björgunarsveitinni Strákum kemur fram að þegar komið var inn á Siglufjörð hafi björgunarskipið Sigurvin tekið við Vestra og fylgt honum síðasta spölinn að bryggju. Þrátt fyrir töluverðan stærðarmun skipanna leysti áhöfn Sigurvins verkefnið af mikilli fagmennsku. Atvikið sýnir vel hversu öflug og fjölhæf ný björgunarskip Landsbjargar eru við krefjandi aðstæður.

Við aðgerðirnar var nýttur dróni Björgunarsveitarinnar Stráka til að leiðbeina Sigurvini síðasta spölinn að bryggju. Bein útsending var frá drónanum um borð í björgunarskipinu þar sem útsýni er takmarkað þegar stórt skip liggur á síðunni. Tæknin hefur reynst afar vel og auðveldar störf áhafnar verulega þegar lagst er að bryggju.

Myndir: Facebook / Björgunarsveitin Strákar