Júlí var fremur kaldur um land allt segir á vefsíðu Veðurstofu Íslands, miðað við það sem algengast hefur verið á síðari árum. Að tiltölu hlýjast á Suðausturlandi og á Ströndum, en kaldast á Norðausturlandi og við Faxaflóa. Úrkoma var yfir meðallagi víðast hvar. Vestanáttir voru óvenjutíðar í mánuðinum.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í júlí var 10,6 stig og er það -1,1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og einnig -1,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti júlímánuður í Reykavík á þessari öld (júlí 2002 og 2018 voru þó álíka kaldir). Á Akureyri var meðalhitinn 11,2 stig, -0,1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en -0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var hitinn 10,5 stig og 10,8 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöðmeðalhiti °Cvik 1991-2020 °Cröðafvik 2012-2021 °C
Reykjavík10,6-1,199152-1,1
Stykkishólmur10,5-0,260177-0,3
Bolungarvík9,9-0,159125-0,1
Grímsey8,0-0,572 til 73149-0,9
Akureyri11,2-0,157142-0,3
Egilsstaðir10,4-0,43768-0,6
Dalatangi9,00,32284-0,1
Teigarhorn9,60,225150-0,1
Höfn í Hornaf.10,80,0
Stórhöfði9,9-0,591146-0,4
Hveravellir7,9-0,327 til 2858-0,5
Árnes10,9-0,995143-1,0

Meðalhiti og vik (°C) í júlí 2022

Júlí var fremur kaldur um allt land og ekki mikið um mjög hlýja daga. Mánuðurinn var að tiltölu hlýjastur á Suðausturlandi og á Ströndum. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,7 stig á Gjögurflugvelli. Að tiltölu var kaldast á Norðausturlandi en einnig var kalt við Faxaflóa. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -1,9 stig við Bláfjallaskála.

Hitavik sjálfvirkra stöðva í lí miðað við síðustu tíu ár (2012-2021).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur við Skarðsfjöruvita og við Lómagnúp, 11,9 stig en lægstur 4,4 stig á Gagnheiði. Á láglendi var meðalhitinn lægstur 6,9 stig á Fonti á Langanesi.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 23,3 stig á Fáskrúðsfirði þ. 7. Mest frost í mánuðinum mældist -1,6 stig á Gagnheiði þ. 4. og aftur þ. 30. Mest frost í byggð mældist -0,2 stig í Víðidalnum í Reykjavík þ. 13.

Úrkoma

Mánuðurinn var fremur úrkomusamur.

Úrkoma í Reykjavík mældist 72,6 mm sem er 45% umfram meðallag áranna 1991 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 47,5 mm sem er 40% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 47,5 mm og 101,1 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 13, þremur fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 9 daga mánaðarins, tveimur fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 147,4 í júlí sem er 35,8 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 165,3, sem er 12,8 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur á landsvísu var jafn meðallagi áranna 1991 til 2020. Vestanáttir voru óvenjutíðar í mánuðinum.

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1009,4 hPa og er það 0,2 hPa yfir meðallagi árnna 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýsingur mánaðarins mældist 1022,9 hPa á Teigarhorni þ. 9. Lægstur mældist þrýstingurinn 984,5 hPa á Höfn í Hornafirði þ. 12.

Fyrstu sjö mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sjö mánuði ársins var 5,0 stig sem er 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,1 stigi undir meðalhita síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 31. sæti á lista 152 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna sjö 4,4 stig sem er 0,4 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,1 stigi undir meðalhita síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 21. sæti á lista 142 ára.

Það hefur verið óvenju úrkomusamt það sem af er ári í Reykavík. Heildarúrkoma mánaðanna sjö var 719,5 mm sem er 55% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Heildarúrkoma hefur aðeins einu sinni mælst meiri í Reykjavík yfir þessa sjö mánuði en nú, en það var árið 1921 þegar heildarúrkoman var 760,4 mm. Á Akureyri hefur heildarúrkoma mánaðanna sjö mælst 316,2 mm sem er 20% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Skjöl fyrir júlí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í júlí 2022 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.