Lögreglan á Norðurlandi vestra segir frá því á facebook að „óskilamunir“ urðu á vegi bónda í Húnabyggð eftir hádegi í gær.
Þeir innihéldu m.a. ruslapoka, málningarfötur, slöngur, plastílát og annan blandaðan úrgang.
Ef einhver kannast við eiganda þessara muna – þá má sá hinn sami endilega gefa sig á tal við eigandann og minna á svona sóðaskapur er ekki í lagi.
Lögreglan bendir á að háttsemi sem þessi er brot á 21. gr. lögreglusamþykktar fyrir Norðurland vestra, þar sem skýrt kemur fram að óheimilt sé að fleygja rusli á almannafæri eða á land annarra nema á viðurkenndum móttökustöðvum.
Sá sem skilur eftir úrgang ber ábyrgð á að fjarlægja hann tafarlaust á eigin kostnað, í þessu tilviki sá eigandi jarðarinnar um að fjarlægja ruslið á sinn kostnað.
Sem betur fer eru til löglegir og góðir losunarstaðir fyrir úrgang – og þeir taka á móti svona „óskilamunum“. Sveitarfélögin auglýsa flest losunarstaði á heimasíðum sínum.
Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra

