Gönguhópar 60+ hittast vikulega á miðvikudögum í Fjallabyggð og ganga saman í léttum göngum í góðum félagsskap. Gengið er bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Í Ólafsfirði er lagt af stað frá Húsi eldri borgara klukkan 10:30 og á Siglufirði frá Ráðhúsinu klukkan 11:15.
Allir eru velkomnir til þátttöku, óháð líkamsástandi, og er áhersla lögð á hreyfingu, ferskt loft og samveru. Göngurnar eru ætlaðar sem jákvæð byrjun á deginum og vettvangur fyrir félagsleg samskipti.

Myndir: af facebooksíðu Hátinds 60+




