Sunnudaginn 22. febrúar sl. var fyrsta barnið skírt í nýju Miðgarðakirkjunni í Grímsey en kirkjan var vígð 10. ágúst á síðasta ári. segir á facebooksíðu Akureyrarbæjar.
Það var fyrsta barn Bráar Svafarsdóttur og Ragnars Árnasonar sem var skírt og hlaut það nafnið Agnes Dís Ragnarsdóttir. Fjölskyldan er búsett í Grímsey. Agnes Dís hlaut einnig fyrr á árinu titilinn fyrst barn ársins á Norðurlandi.
Séra Oddur Bjarni Þorkelsson sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli annaðist athöfnina í blíðskaparveðri út í Grímsey.
Tengt efni:
Mynd: af facebooksíðu Akureyrarbæjar




