
Þessir hressu keppendur létu allt vaða í fögnuðinum. Gullið um hálsinn og buxurnar á hælunum, svona á að taka á móti sigri.
Siglómót Blakfélags Fjallabyggðar fór fram um helgina og var líf og fjör í íþróttahúsum Fjallabyggðar frá morgni til kvölds. Alls mættu 52 lið til leiks, þar af 12 karlalið og 40 kvennalið. Spilaðir voru 125 leikir í níu deildum og var ljóst frá fyrstu upphitun að keppnisskapið og gleðin færu saman.
Mótið tókst afar vel og ríkti góð stemning bæði innan vallar og utan. Skipulag gekk samkvæmt áætlun og þátttakendur sýndu mikinn metnað í leik sínum. Að sögn mótshaldara er vonast til að allir hafi haft gaman af, notið samverunnar og eigi góða heimferð að móti loknu. Hægt er að nálgast öll úrslit og lokastöðu í hverri deild á vef mótsins hér.
Á laugardagskvöldinu fór fram verðlaunaafhending í Bátahúsinu þar sem lið sem enduðu í þremur efstu sætum hverrar deildar fengu verðlaunapeninga fyrir árangur sinn. Kvöldið hélt áfram á Rauðku þar sem fagnaðarlætin náðu nýjum hæðum. Þar steig Landabandið á svið og hélt uppi kraftmikilli stemningu fram eftir nóttu.
Blakfélag Fjallabyggðar vill þakka öllum liðum kærlega fyrir komuna og þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd mótsins. Þá eru styrktaraðilum færðar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.
Meðal þeirra sem studdu við bakið á mótinu voru Bás ehf, Byggingafélagið Berg ehf, Höldur ehf, L-7 ehf, Rauðka ehf, Segull 67 og Vörukaup ehf. Sérstakar þakkir fá Hákon og Gerða hjá Fiskbúð Fjallabyggðar, Kiddi í Kjörbúðin og Fjallabyggð fyrir sitt framlag til að gera mótið að veruleika.
Siglómót BF hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af stærri viðburðum vetrarins í Fjallabyggð og helgin sýndi enn á ný hvað samhugur, íþróttaandi og góð samvinna geta skapað eftirminnilega stund fyrir bæði keppendur og gesti.
Myndir: Facebook / Blakfélag Fjallabyggðar
Tengt efni
Fjallabyggð tekur á móti 52 liðum í einu stærsta blakmóti ársins

























