Freyr Steinar Gunnlaugsson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri og framleiðslustjóri hjá Genis Nutraceuticals ehf. á Siglufirði, dótturfélagi Genis hf. sem annast framleiðslu fæðubótarefna félagsins.

Freyr býr yfir nær tveggja áratuga reynslu af rekstri og stjórnun í sjávarútvegi. Frá árinu 2006 hefur hann rekið eigin útgerð og sinnt rekstri, fjármálum, kvótasamningum og stefnumótun. Samhliða því kom hann að uppbyggingu og daglegum rekstri
fiskvinnslustöðvar á Siglufirði, þar sem hann leiddi allt að 30 manna teymi í krefjandi og gæðadrifnu framleiðsluumhverfi.

Freyr er með skipsstjórnarréttindi og vélstjórnarmenntun og stundar nú nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Bakgrunnur hans sameinar rekstrarlega yfirsýn, tæknilega þekkingu, fjármálastjórnun og sterka leiðtogahæfni, sem nýtist vel við áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar.

Í nýju starfi mun Freyr leiða framleiðslustarfsemi á Siglufirði og vinna að frekari þróun, aukinni skilvirkni og markvissri gæðastjórnun.
„Við erum afar ánægð með að fá Frey til liðs við okkur,“ segir Sesselja Ómarsdóttir,
forstjóri Genis hf. „Reynsla hans af rekstri og stjórnun í framleiðsluumhverfi mun styrkja grunn starfseminnar og styðja við áframhaldandi vöxt.“

Mynd: Genis