Hægeldaðar kótilettur í rjómasósu (uppskrift fyrir 4)

  • 6 svínakótilettur
  • 1 gulrót
  • 1 gulur laukur
  • 1 lárviðarlauf
  • salt og pipar
  • vatn
  • 1 msk kálfakraftur (kalvfond)
  • 2 dl rjómi
  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 msk sojasósa
  • salt og pipar
  • sykur

Saltið og piprið kótiletturnar og brúnið þær á báðum hliðum á rúmgóðri pönnu. Skerið lauk í báta og gulræturnar í sneiðar og bætið á pönnuna, hellið síðan vatni svo rétt fljóti yfir.

Setjið kálfakraft og lárviðarblað í og látið sjóða undir loki við vægan hita í 2-3 klukkustundir. Snúið kótilettunum gjarnan annað slagið.

Takið kjötið af pönnunni og sigtið sósusoðið. Setjið soðið aftur á pönnuna (laukurinn og gulrótin eiga ekki að vera með), hrærið rjóma og sýrðum rjóma saman við og smakkið til með sojasósu, salti og pipar.

Setjið smá sykur í sósuna og leggið kótiletturnar í og látið sjóða saman í nokkrar mínútur.

Berið fram með kartöflum og rifsberjahlaupi.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit