Í fundargerð Bæjarráðs Fjallabyggðar dags. 4. júní 2019 kemur fram að misjafn skilningur var hjá tilboðsgjöfum á mikilvægum verkþætti í verkið “Útskipting ljóskerja og stólpa”.

Raffó ehf hefur þess vegna fallið frá tilboði sínu.

Lagfæra þarf útboðsgögn og bjóða verkið út að nýju.

Sjá úr fundargerð:

8. 1903002 – Götulýsing 1. áfangi
Ármann V. Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar sat undir þessum lið.

Lagt fram erindi Ingva Óskarssonar fh. Ingva Óskarssonar ehf., dags. 29.05.2019 þar sem óskað er eftir upplýsingum varðandi útboð í götulýsingu 1. áfanga, útskipting ljóskerja og stólpa.

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar dags. 04.06.2019 þar sem fram kemur að deildarstjóri hefur átt samtal við báða bjóðendur í verkið “Útskipting ljóskerja og stólpa” og er ljóst eftir þær viðræður að verktakarnir hafa boðið í verkið með sitthvorn skilning á einum verkþætti. Þessi verkþáttur er mjög veigamikill í verkinu og þess vegna er svo mikill munur á tilboðum. Undirritaður leggur til við bæjarráð að útboðsgögn verði lagfærð og verkið boðið út að nýju.

Raffó ehf hefur fallið frá tilboði sínu með tölvupósti dags. 4. júní 2019 vegna þessa misskilnings á gögnum.

Bæjarráð samþykkir í ljósi ofangreinds að hafna tilboði Ingva Óskarssonar ehf vegna mistúlkunar á gögnum og felur deildarstjóra að lagfæra útboðsgögn og bjóða verkið út að nýju.