- Hér má sjá vatnstankinn sem stendur hátt uppi í fjallshlíðinni.
- Gunnar Smári við lagfæringar á vatnstankinum við hellinn.
Vinirnir Gunnar Smári Helgason og Andri Hrannar Einarsson hafa verið iðnir við störf síðustu daga í hellinum á Kanaríeyjum þar sem Gunnar Smári dvelur hluta ársins með eiginkonu sinni, Kristínu Sigurjónsdóttur. Fylgjendur þeirra á samfélagsmiðlum hafa getað fylgst með tilþrifunum og ekki vantað húmorinn þegar þeir félagar takast á við verkefnin sem fylgja hellalífinu.
Gunnar Smári og Kristín hafa komið sér vel fyrir í hellinum þar sem þau búa hluta ársins. Lífið í slíku umhverfi krefst þó reglulegs viðhalds og kom nýlega upp vandamál með vatnstank við hellinn sem geymir allt að 30 þúsund lítra af vatni.
Vandamálið kom upp þegar loki í vökvunarkerfinu gaf sig með þeim afleiðingum að pálmatré við hellinn fékk óvenju rausnarlegan vatnsskammt.
„Það var nýlega búið að fylla tankinn þegar uppáhaldspálmatréð okkar fékk hátt í 30 þúsund lítra af vatni. Loki í vökvunarkerfinu stóð á sér og tréð fékk nokkurra ára vökvunarskammt án þess að við vissum af því,“
sagði Gunnar Smári í samtali við trolli.is.
- Andri við byggingu á lúxusgistingu fyrir hellakettina.
- Gunnar Smári í góðum félagsskap hellakattanna á Kanaríeyjum.
Til að koma öllu í lag þurfti að tæma vatnstankinn alveg áður en hægt var að þrífa hann að innan. Það reyndist engin smávinna. Gunnar tæmdi tankinn með fötu á meðan Andri dró fötuna upp og áætla þeir að um 300 fötur hafi farið í gegnum hendurnar á þeim félögum áður en þrifin hófust.
Þótt þeir séu löngu hættir að teljast unglömb hafa þeir sýnt að dugnaður og útsjónarsemi skila sínu. Verkinu er nú lokið og vatn komið aftur á tankinn. Pálmatréð hefur vart litið betur út í langan tíma.
Vídeó
Hér má sjá þá félaga Gunnar Smára og Andra Hrannar í óvenjulegu verkefni við vatnstankinn við hellinn.
Indriði mættur í hellinn
Í þessu myndbandi má sjá hellisbræður hvíla sig eftir átökin, rennblauta upp fyrir haus. Andri bregður þar á leik og tekur Indriða úr Fóstbræðrum, eins og frægt er, og segir. „Það var eitthvað bank í ofninum, og hver á að laga það? Á ég að gera það?“
Myndir og vídeó: úr einkasafni










