Súkkulaðihjónin Andri Þór Gíslason og Kristbjörg Bjarnadóttir hyggjast halda til Reykjavíkur um helgina þar sem þau munu kynna vörur sínar frá fyrirtækinu SMAKK á Matarmarkaði Íslands sem fram fer í Hörpunni.

Kristbjörg mætti í morgun í útvarpsþáttinn Bítið á Bylgjunni þar sem hún ræddi við þáttastjórnendurna Heimi Karlsson, Lilju Katrínu Gunnarsdóttur og Ómar Úlf. Þar var meðal annars rætt um fyrirtækið, handgerða súkkulaðið sem þau framleiða og páskaeggin sem hafa vakið athygli.

Sjá einnig: Smakk frá Siglufirði meðal framleiðenda á Matarmarkaði Íslands

Í þættinum veltu þáttastjórnendur fyrir sér hvort ferðalagið suður takist á áætlun, enda hefur veðurspáin verið krefjandi undanfarna daga og víða ófært um landið. Holtavörðuheiði hefur til að mynda verið lokuð um tíma, svo eitthvað sé nefnt.

Þrátt fyrir óvissuna stefna súkkulaðihjónin á að komast til Reykjavíkur og taka þátt í Matarmarkaði Íslands, þar sem gestir fá tækifæri til að kynnast handgerðu súkkulaði þeirra nánar.

Viðtalið í Bítið á Bylgjunni er skemmtilegt og áhugavert og vel þess virði að hlusta á.

Mynd: Skjáskot úr spilara.