Nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði um hádegisbil í dag.
Það rann meðfram honum niður að garðsenda en stöðvaðist þó talsvert ofan þjóðvegar. Þarna eru snjóflóð algeng og var búist við að slíkt flóð gæti fallið nú eftir mikla snjókomu yst á Tröllaskaga undanfarna daga. Varað hefur verið við umferð fólks á þessu svæði síðan á fimmtudag, þar sem snjóflóð geta runnið langt út á undirlendið innan við bæinn meðfram varnargarðinum.
Upptökin sjást ekki vel vegna veðurs en svo virðist sem hlaupið hafi úr Ytra-Strengsgili og Jörundarskál og tungurnar sameinast við neðri enda varnargarðsins. Flóðtungan virðist vera um 2 m þykk og hefur rofið með sér hríslur og annan gróður.
Stórt snjóflóð féll einnig úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í dag, sunnudag. Það kom úr næsta gili norðan við hestahúsahverfið, sem er norðan við munna Héðinsfjarðarganga. Ólafsfirðingar hafa verið beðnir um að takmarka umferð um hesthúsin vegna snjóflóðahættu.
Fylgjast má með snjóflóðavaktinni á https://gottvedur.is/snjoflod/
Tengdar fréttir:
Forsíðumynd: Skjáskot af vefsíðu Veðurstofunnar





