Bíll fór út af Siglufjarðarvegi síðdegis í gær, mánudaginn 16. mars, þegar aðstæður voru orðnar erfiðar í einni af brekkunum þar sem jarðsigin eru. Enginn slasaðist í óhappinu.

Í færslu á Facebook lýsir Daníel Pétur Baldursson atvikinu og þakkar björgunarsveitinni fyrir skjót viðbrögð.

„Það er gott að eiga björgunarsveitina Stráka hér á Siglufirði. Það sannaðist enn og aftur þegar við þurftum á aðstoð að halda um klukkan 18:30, þegar aðstæður voru orðnar erfiðar og bíllinn hreinlega sveiflaðist út af Siglufjarðarveginum.

Allt fór vel og enginn slasaðist. Takk fyrir hjálpina, Strákar,“

segir Daníel.

Daníel þakkar björgunarsveitinni Strákum fyrir aðstoðina

Í samtali við Trolli.is segir Daníel að fjölskyldan hafi verið föst í um tvo og hálfan tíma frá því hringt var í neyðarlínuna.

„Það liðu um 2,5 tímar frá því við hringdum í 112, sem var nánast strax og bíllinn stöðvaðist,“

segir hann.

Að sögn Daníels var fjölskyldan á heimleið og vonaðist til að komast á leiðarenda áður en veðrið versnaði, en aðstæður á veginum reyndust erfiðar og leiddu til óhappsins.

Mynd: Daníel Pétur Baldursson, birt með góðfúslegu leyfi hans.