Ungir skíðamenn frá SSS tóku þátt í bikarmóti í alpagreinum sem haldið var í Bláfjöllum dagana 14. og 15. mars síðastliðinn. Keppt var í flokki 12–15 ára og létu keppendur félagsins vel að sér kveða.

Mundína Ósk Þorgeirsdóttir náði glæsilegum árangri þegar hún sigraði annað stórsvigsmótið sem fram fór um helgina. Þá voru þau Haraldur Helgi Hjaltason og Sóley Birna Arnarsdóttir einnig meðal keppenda SSS og stóðu sig vel í báðum stórsvigsmótunum.

Þátttaka SSS var góð og ljóst að efnilegir skíðamenn félagsins eru að safna dýrmætri keppnisreynslu á mótum sem þessum.

Myndir: Facebook / SSS / Þorgeir Bjarnason fararstjóri