17. júní hátíðardagskrá í Dalvíkurbyggð 2022

08:00 Fánar dregnir að húni – allir fánar á loft!

10:00-17:00 Opið á Byggðasafninu og frítt inn.
Fánasmiðja þar sem börn og fullorðnir geta gert sinn eigin fána. (Athugið að lokað er á bókasafninu þennan dag)

11:00 17. júní hlaupið fer fram á Dalvíkurvelli í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS.
Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.

13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega. Fánar í boði fyrir þá sem mæta.

13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi

  • Ávarp fjallkonunnar
  • Hátíðarræða
  • Tónlistaratriði

Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

Að lokinni hátíðarstund við Berg:

  • Hestamennska
    • Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.
  • Leiktæki í umsjón Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku
    • Sápubolti, vatnsrennibraut, hoppukastalar og fleira skemmtilegt.

Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.

Á milli kl. 13:00-17:00

  • Myndlistasýning í Bergi opin frá 12 – 17. G. Ármann sýnir málverk Allir velkomnir.


Á milli kl. 18:30 – 21:00

  • Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug.
    • Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir og frítt inn (börn undir 10 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum)
    • Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar

P.S. við hvetjum síðan alla til að taka forskot á sæluna
Dalvík/Reynir tekur á móti Kormáki/Hvöt á Dalvíkurvelli fimmtudaginn 16. júní kl. 19:15.