Æfing í bráðainngripum fyrir lækna í dreifbýli fór fram á Siglufirði um síðustu helgi undir handleiðslu bráðalækna frá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Markmið æfingarinnar var að efla viðbragðsgetu lækna við krefjandi aðstæður þar sem veður, færð og langar vegalengdir geta torveldað aðgengi að sjúkrahúsum. Í slíkum aðstæðum skiptir skjótt og öruggt viðbragð sköpum.

Námskeiðið var ætlað sérfræðingum í heimilislækningum á starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands utan Akureyrar, auk sérnámslækna. Alls tóku 21 læknir þátt og nýttu helgina til að efla þekkingu sína og æfa viðbrögð þar sem hver mínúta getur haft úrslitaáhrif.

Á næstu vikum verða haldnar frekari æfingar á vettvangi á Dalvík, Siglufirði, Sauðárkróki, Blönduósi og Húsavík.

Þar munu sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar og aðrir viðbragðsaðilar taka þátt í æfingunum.

Myndir og heimild: HSN