Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur fundað vegna fjölda nýrra Covid -19 smita í sveitarfélaginu síðustu daga.

Alls hafa 6 jákvæð sýni verið greind og á þriðja hundrað manns sett í sóttkví. Mikill fjöldi sýna hefur verið tekinn í gær og í dag og ætla má að fjöldi sýna sé um 400.

Vegna þessa telur aðgerðastjórn að ráðast þurfi í harðar aðgerðir svo unnt sé að takmarka frekari útbreiðslu sýkingarinnar strax og ná þar með tökum á ástandinu.

Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að fara í eftirfarandi aðgerðir.

 Sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að þær tilslakanir á samkomutakmörkunum sem taka gildi mánudaginn 10. maí samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins muni ekki taka gildi í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi fyrr en mánudaginn 17. maí.

 Öllu skólahaldi í Árskóla verður aflýst frá og með mánudeginum 10. maí a.m.k. til og með föstudeginum 14. maí.

 Leikskólinn Ársalir verður lokaður á sama tíma, nema fyrir skilgreinda forgangshópa, s.s. heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og sjúkraflutningsmenn næstu viku.

 Öll próf í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki verða heimapróf og skólinn lokaður nemendum.

 Heimavist Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra verður rýmd eins og kostur er.

 Sundlaugar sveitarfélagsins í Skagafirði verða lokaðar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum 16.maí.

 Íþróttaæfingar yngri flokka verði óheimilar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum 16. maí.

 Öllum íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins verður lokað nema fyrir æfingar meistaraflokka frá og með mánudeginum 10.maí til og með sunnudeginum 16.maí.

 Íþróttakappleikir fullorðinna verða spilaðir án áhorfenda.

 Líkamsræktarstöðvar verða lokaðar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum16. maí.

 Skíðasvæðinu í Tindastóli hefur verið lokað.

 Umhverfisdagar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem fara áttu fram 15. maí og plokk-áskorenda keppni milli fyrirtækja sem átti að hefjast núna á mánudag þ.e.a.s á morgun, er frestað um óákveðinn tíma.

 Ráðhúsið á Sauðárkróki verður lokað frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið.

 Fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða sveitarfélagsins verður frestað um viku.

 Öllum menningarviðburðum á Sauðárkóki verður aflýst frá og með 10. maí, til og með sunnudeginum 16. maí. Þar með leiksýningum, bíósýningum og öðrum viðburðum þar sem fólk safnast saman.

Jafnframt þessum aðgerðum hafa stofnanir og fyrirtæki í Skagafirði ákveðið að bregðast við með eftirfarandi hætti.


 Afgreiðslutími Skagfirðingabúðar verður lengdur til að dreifa betur verslun og draga úr þeim fjölda sem inni er á hverjum tíma. Viðskiptavinir eru beðnir um að taka tillit til þess.

 Bílaverkstæði, og Vélaverkstæði KS og Tengill verða lokuð frá og með 10. maí, til og með föstudeginum 14. maí. Tengill mun þó starfa eftir neyðarskipulagi fyrirtækisins næstu viku.

 Byggingavöruverslun KS á Eyrinni verður lokuð en afgreiðsla verður í gegnum síma.

 Vörumiðlun mun loka afgreiðslu og jafnframt loka endurvinnslumóttöku en mun afgreiða vörur út úr húsi.

 Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun loka afgreiðslu í þessa viku og starfsemi verður skert.

 Byggðastofnun mun loka afgreiðslunni þessa viku og starfsemi verður skert.

 1238 Batlte of Iceland og Grána bistro verður lokað þessa viku.

 GrandInn Bar verður lokaður þessa viku.

 Veitingastaðurinn Lemon verður með matsal lokaðan en selur mat út.

Afgreiðsla sýslumannsembættisins að Suðurgötu 1 verður lokuð og starfsemin skert frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið. Beina má erindum gegnum síma og tölvupóst, 458-2500 og nordurlandvestra@syslumenn.is

Athugið!

 Aðgerðastjórn vill beina því til þeirra einstaklinga sem eru með einkenni að hafa samband við heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki eða panta tíma í gegnu um heilsuvera.is.

 Aðgerðastjórn vill beina því til íbúa svæðisins að hafa samband í síma 444-0700 og eða í netfangið nordurland.vestra@logreglan.is ef þeim hafi verið gert að sæta sóttkví og um húsnæðisskort er að ræða