Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Breiðafirði, Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurlandi og Austfjörðum. Óvissustig á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu og Vegagerðin lýsti yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla kl. 15:15 í dag.

Sunnan 8-15 og skúrir eða slydduél, en austan hvassviðri með snjókomu og skafrenningi norðan- og austantil fram á kvöld. Hiti um eða yfir frostmarki.

Breytileg átt 5-13 á morgun, en gengur í norðan og norðvestan 15-23 vestantil, hvassast á Vestfjörðum. Snjókoma eða él, en úrkomuminna sunnan jökla. Hiti um og yfir frostmarki, en yfirleitt vægt frost vestantil. Hvessir austanlands annað kvöld.
Spá gerð: 26.03.2026 14:59. Gildir til: 28.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Breytileg átt 3-8 m/s og bjart með köflum, en norðvestan 15-23 og snjókoma austantil fram undir hádegi. Frost 1 til 8 stig. Gengur í suðaustan 15-23 m/s síðdegis með snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri, fyrst sunnan- og vestanlands.

Á sunnudag:
Breytileg átt 8-15 og snjókoma, en él eða slydduél sunnanlands. Hiti um frostmark.

Á mánudag:
Suðvestlæg átt 5-13 og él, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Lægir með samfelldri snjókomu sunnan- og vestantil um kvöldið.

Á þriðjudag:
Vestlæg átt og él, en bjart fyrir austan. Yfirleitt vægt frost.

Á miðvikudag:
Suðlæg átt og styttir upp, en él vestanlands. Hiti um eða undir frostmarki.
Spá gerð: 26.03.2026 08:16. Gildir til: 02.04.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings Veðurstofu íslands

Lægðin verður að fikra sig nær suðvesturhorni landsins fram eftir degi þegar úrkomuskilin færast norðaustur yfir landið. Nú í morgunsárið og fram til hádegis er úrkoman að falla að mestu sem snjókoma, en með suðurströndinni eru líkur á slyddu þegar tekur að hlýna með morgninum.

Um og eftir hádegi er svo von á skúraveðri sunnan og vestantil þegar vind tekur að lægja þar. Í kvöld er svo útlit fyrir hæglætisveður um mest allt land.

Á morgun, föstudag, verður lægðin stödd rétt suður af landinu og þá hvessir aftur um vestanvert landið, með norðan hvassviðri eða stormi norðvestantil.

Aðfaranótt laugardags er þessi sama lægð enn að stríða okkur þar sem hún verður nú stödd austur af landinu á leið sinni norðaustur og veldur talsverðu hvassviðri suðaustan- og austanlands fram undir hádegi þegar lægir. En þá nálgast okkur enn ein lægðin úr suðvestri með tilheyrandi hamagangi. Semsagt, áframhaldandi umhleypingar í veðri framundan.

Sjá nánar um veður: Hér
Sjá nánar um færð á vegum: Hér

Mynd: Vegagerðin