Klukkan 05:14 í nótt fengu lögregla og slökkvilið á Akureyri tilkynningu um eld í íbúðarhúsi við Norðurgötu.

Strax var ljóst að um mikinn eld var að ræða en húsið er gamalt timburhús. Erfiðlega hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins og leggur talsverðan reyk yfir hluta Oddeyrarinnar og biðjum við alla að loka gluggum hjá sér meðan þetta ástand varir.

Í húsinu eru 3 íbúðir og náðu íbúar tveggja þeirra að koma sér út en ekki hefur tekist að staðfesta það hvort að einhver hafi verið inni í þeirri íbúð sem eldurinn kom upp í. Eins og fyrr greinir er slökkvistarf enn í gangi og verða frekari upplýsingar settar inn síðar í dag.

 

Mynd:pixabay