Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Viggó Jónsson.

Það er heilmikið að gerast á skíðasvæðinu Tindastóli.

Viggó Jónsson framkvæmdastjóri tekur á móti okkur í skíðaskálanum og segir okkur frá þeirri uppbyggingu sem hér er í gangi, framtíðarplönin og annað sem hann er að sýsla við.

Nýverið var skrifað undir styktarsamning mili AVIS og skíðadeildarinnar og á myndinni sjást Baldur Sigurðsson, umboðsmaður AVIS á Sauðárkróki, Viggó (2. frá vinstri), Axel Gómez framkvæmdastjóri AVIS og Arnþór Jónsson, sölustjóri (Mynd PF).

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml