Föstudaginn 2. október síðastliðinn tóku nemendur í Grunnskóla Húnaþings vestra þátt í dansfjöri gegn einelti í skólanum.

Nemendum var blandað þvert á aldur, einn til tveir bekkir af hverju stigi saman í hóp. Jón Pétur Úlfljótsson danskennari lét hvern hóp vinna saman þvert á aldur og fjallaði um mikilvægi fyrirmyndir eldri nemenda, mátt samstöðunnar og gildi þess að öllum líði vel. 

Þegar hver hópur lauk dansfjörinu í íþróttamiðstöð komu nemendur aftur í skólann í 3-4 manna hópum þar sem nemandi af unglingastigi var hópstjóri.

Þar hjálpuðust krakkarnir að við að teikna útlínur handa sinna og klippa út. Þá var nafn hvers nemenda ritað á höndina og límt í kringum sól sem komið var fyrir á vegg í anddyri. Síðan skilaði hver hópur einni eða fleiri tillögum að slagorði skólans gegn einelti.

Nemendaráð mun svo fara yfir tillögurnar og ákveða með hvaða hætti slagorðið verður valið.  Þegar slagorðið verður ákveðið verður það límt í miðju sólarinnar.

Mynd/Grunnskóli Húnaþings vestra

Eftirfarandi tillögur komu að slagorði gegn einelti:

Berjumst á móti einelti

Berjumst gegn einelti

Burt með eineltið

Burt með leiðindin

E!nelti er BANNAÐ!

Ég er eins og ég er

Eigum við að vera vinir?

Einelti er ekki gott

Einelti er ekki liðið hér í skólanum

Einelti er ógeð

Einelti er vont

Eineltislaus skóli

Eineltislaus skóli-það er okkar skóli

Einelti sökkar

Ekki leggja í einelti

Ekki vera idjót!!!

Enginn vill fá einelti en allir vilja hafa gaman

Hafa gaman

Hjálpumst að

Höldum hópinn

Lögum þetta saman!

Nei gegn einelti

Nei við einelti

Öll börnin í skólanum eiga að vera vinir

Stöndum saman

Stopp – ég vil ekki einelti

Stopp-ég vil þetta ekki

Stoppum einelti

Það er ljótt að leggja í einelti

Þú er fullkominn 🙂

Verum öll vinir

Verum vinir

Verum vinir ekki óvinir

Við erum ekki brotið pússl

Við erum frábær

Við erum góð við hvort annað

Við erum öll jöfn

Við erum vinir

Við leggjum ekki í einelti hér!

Við viljum ekkert einelti

Við viljum ekki einelti

Villt þú leika með okkur

Vinátta stoppar einelti