Fjarskiptasjóður samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hefur samþykkt að veita Húnaþingi 33,5 milljóna króna styrk vegna lagningar ljósleiðara í Hrútafirði.
Fjarskiptasjóður hefur lokið yfirferð á styrkumsóknum í B-hluta Ísland ljóstengt 2021 og vegna ljósleiðarastofnstrengja. Þrettán sveitarfélögum stendur til boða samtals 180 milljónir króna. Tilboð fjarskiptasjóðs nær til allra styrkhæfra staða sem sótt var um í þessari lokaúthlutun verkefnisins.
Eftirfarandi styrkupphæðir standa sveitarfélögum til boða vegna tilgreindra styrkbeiðna eða áfanga.
| Sveitarfélag | Styrkbeiðni | Áfangar | Styrkupphæð í boði kr. |
| Akrahreppur | 3 | 6.000.000 | |
| Akureyrarbær | Stofnstrengur til Hríseyjar | 6.000.000 | |
| Árneshreppur | 1, 2, 3 | 25.200.000 | |
| Árneshreppur | Stofnstrengur til Djúpavíkur | 21.300.000 | |
| Dalabyggð | 2 | 3.500.000 | |
| Húnaþing vestra | 1 | 1, 2 | 33.500.000 |
| Fjarðabyggð | 1, 2 | 17.000.000 | |
| Ísafjarðarbær | 1, 2, 3, 4 | 14.000.000 | |
| Múlaþing | 1 | Berufjörður | 27.000.000 |
| Reykjanesbær | 7.000.000 | ||
| Skaftárhreppur | 2.400.000 | ||
| Strandabyggð | 2 | 2.200.000 | |
| Suðurnesjabær | 12.700.000 | ||
| Tálknafjarðarhreppur | 2 | 2.200.000 |
Til viðbótar stendur Múlaþingi til boða 71.000.000 kr. (vegna Fljótsdalshéraðs) og Borgarbyggð 181.000.000 kr. á þessu ári, sem síðustu áfangagreiðslur í þeirra ljósleiðaraverkefnum á grundvelli Ísland ljóstengt.
