Mikið fjör var í Ólafsfirði um liðna helgi.
Var þá haldið hið árlega Sápuboltamót sem setur heldur betur svip á bæinn.
Í fyrra kepptu 19 lið en í ár voru þau 36, svo þátttakan hefur aukist umtalsvert.
Liðið „Kristófer Andri“ vann mótið og „The Goons“ einhyrningarnir voru í bestu búningunum.
Eins og myndirnar sýna voru liðin aldeilis skrautleg og greinilegt að mikið var í þá lagt.
















Myndir/Kristín Halldórsdóttir



