Líkt og undanfarin 14 ár var ljóðasamkeppni milli nemenda í 8. – 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar liður í ljóðahátíðinni okkar Haustglæður.

Nemendur komu í heimsókn í Menntaskólann á Tröllaskaga um miðjan nóvember og nýttu listaverk nemenda og kennara MTR sem kveikjur að ljóðum. Eftir nokkur góð ráð frá stjórnanda hátíðarinnar og vangaveltum yfir listaverkunum urðu til um 70 ljóð hjá þeim rúmlega 50 nemendum sem tóku þátt. Fimm manna dómnefnd fór svo yfir afraksturinn og valdi úr þau ljóð sem þóttu skara fram úr.

Síðastliðinn föstudag fjölmenntu nemendur svo í Ljóðasetrið því nú var komið að verðlaunahendingu. Að þessu sinni voru það þrjár stúlkur, sem allir eru í 9. bekk, sem áttu bestu ljóðin að mati dómnefndarfólks. Þessar stúlkur eru: Aníta Heiða Kristinsdóttir, Katrín Hugljúf Ómarsdóttir og Natalía Perla Kulesza. Þær hlutu að verðlaunum ljóðabækur og gjafabréf frá Sigló-veitingum.

Myndir/Halldóra María Elíasdóttir og Þórarinn Hannesson