Fasteignamiðlun kynnir eignina Aðalgata 16, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0071 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Aðalgata 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0071, birt stærð 158.0 fm.
Skoða myndir: Hér

Mikið endurnýjuð eign frábærlega staðsett í miðbæ Siglufjarðar við grunnskólann. Björt opin rými á efri hæð, tvö baðherbergi og mörg svefnherbergi. 

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í stórt og rúmgott flísalagt anddyri með góðu skápaplássi. Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og anddyri. Herbergin eru misstór öll parketlögð. Hjónaherbergi er stærst og með stórum skápum. Baðherbergi hefur verið gert upp og flísalagt með gráum flísum á gólfi og í walk in sturtuklefa. Ljós innrétting með grárri borðplötu og speglaskápum að ofan. Þvottahús er með ljósum flísum og útgangi í garð. 
Gengið er upp timburstiga með stál handriði og plexigleri. Efri hæð samanstendur af eldhúsi, stofu/borðstofu, baðherbergi, sjónvarpsherbergi og svefnherbergi. Fljótandi parket er á allri efri hæðinni fyrir utan baðherbergi eru dökkar flísar á gólfi og hvítar flísar á veggjum. Eldhús og stofa/borðstofa eru í opnu rými með stórgóðu gluggarými og útsýni. Baðherbergi er í gluggalausu rými með klósetti, vaski og innréttingu með grárri borðplötu. Sjónvarpsherbergi er með filmum í glugga. Eignin hefur verið steinuð/múruð að utan árið 2020 og þakið tekið í gegn. Gler þarfnast endurnýjunar en gluggar í lagi. Sérstæði er með eigninni. 

Eldhús: Eldhúsið var tekið í gegn 2017 og settar hvítar Ikea innréttingar með grárri borðplötu. Eingöngu neðriskápar og háir skápar fyrir ísskáp og bakaraofn. Flísar eru á vegg og frístandandi eyja með bar stólum. 
Stofa/borðstofa: er í opnu rými með eldhúsi. 
Baðherbergi: eru tvö, annað á neðri hæð og hitta á efri hæð. Baðherbergi á neðri hæð var tekið í gegn árið 2019. 
Svefnherbergi: eru fjögur talsins með möguleika á fimmta. Öll eru parketlögð með sama parketinu. Skápur er í hjónaherbergi. 
Þvottahús: er með sérútgang og góðu geymsluplássi. Flísar á gólfi.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali