Í desember ár hvert setur Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir upp vinnustofusýningu í Kompunni. Þar má sjá það allra nýjasta sem hún hefur verið að fást við hverju sinni. Í ár verða það akrílmálverk á striga sum kláruð en önnur á vinnslustigi. Og eins og með annað hráefni sem Aðalheiður Sigríður notar til listsköpunar, hún er að endurnýta striga sem áður hefur verið málað á.
Aðalheiður Sigríður segir “Í upphafi ferils míns var ég aðallega að miðla list minni með málverki en færðist síðan í aðra miðla. Málverkið hefur samt ávallt fylgt mér og löngunin og þörfin fyrir að mála á striga verið til staðar. Nú er svo komið að uppsafnaður fjöldi málverka bæði mannlífsmynda og óhlutbundinna er orðið tilefni til sýningar.
Fjölbreytileiki mannsins er umfjöllunarefnið, sagan, tilfynningar, reynsla og væntingar. Verkin eru unnin jafnt í vinnustofudvöl í Danmörku og á vinnustofum mínum í Freyjulundi og Alþýðuhúsinu”.
Sýningin verður svo opin frá kl. 14.00 – 17.00 þegar skilti er úti til 17. desember að fyrstu Aðventuhelginni undanskilinni.
Léttar veitingar í boði á opnun og öll velkomin.
Mynd/Aðalheiður Sigríður Aðalsteinsdóttir