Störf yfirhjúkrunarfræðings svæðis og yfirhjúkrunarfræðings heilsugæslu á HSN Sauðárkróki voru auglýst laus til umsóknar þann 29. maí sl. Umsóknarfrestur rann út þann 20. júní sl.

Kristrún Snjólfsdóttir hefur verið ráðin sem yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Sauðárkróki. Hún hefur undanfarin ár starfað sem yfirhjúkrunarfræðingur á deild I og II á HSN Sauðárkróki. Í júní 2019 lauk Kristrún diplómanámi í stjórnun í heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Akureyri. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2000 og hefur starfað sem slíkur á Sauðárkróki síðan þá. Fyrir það vann Kristrún sem sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks en hún lauk sjúkraliðaprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 1996.

Kristrún tekur við starfinu þann 1. október nk. en þá lætur Herdís Klausen af störfum sem yfirhjúkrunarfræðingur svæðis.

Elín Árdís Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf yfirhjúkrunarfræðings heilsugæslu á Sauðárkróki. Elín Árdís er með meistarapróf í heilsugæsluhjúkrun frá Háskólanum á Akureyri. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá sama skóla árið 2016 og hefur síðan þá unnið á sjúkradeild og á heilsugæslu HSN Sauðárkróki.

Elín Árdís tekur við starfinu þann 1. október nk. en þá lætur Guðrún Jóhannsdóttir af störfum sem yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu.