Lögreglan á Norðurlandi vestra vil vekja athygli vegfarenda á því að á þjóðvegi 1 um Blöndubrú á Blönduósi eru framkvæmdir, en unnið er að lagfæringum á brúnni. Önnur akreinin er lokuð og verður það þannig fram á haustið.

Umferð er stýrt með umferðarljósum og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi, þolinmæði og virða þær reglur sem að um framkvæmdasvæðið gilda.

 

Forsíðumynd: af Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra