Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu á Gula miðanum Magnesíum + kalk töflur sem Heilsa ehf. framleiðir vegna aðskotahlutar sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Guli miðinn
  • Vöruheiti: Kalk+Magnesíum
  • Geymsluþol: Best fyrir lok Dagsetning: 02/2025
  • Lotunúmer: 2501-1211
  • Nettómagn: 180 töflur
  • Strikamerki: 5690684000226
  • Framleiðandi (pökkunaraðili): Heilsa, Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Mos, Apótekarinn, Austurbæjarapótek, Borgar Apótek, Fjarðarkaup, verslanir Hagkaupa, Heilsuhúsið, Heimkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Kauptún, verslanir Krónunnar, Lyf og heilsa, Lyfja, Lyfjaval, Lyfjaver, Melabúðin, Reykjanesapótek, Reykjavíkur Apótek, Verslanir Samkaupa (Iceland, Kjörbúðin, Krambúðin, Nettó) og Urðarapótek.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í verslun það sem hún var keypt.


Ítarefni