Flestir Íslendingar hafa á einhverjum tímapunkti farið inn á vef Vegagerðarinnar og skoðað færðarkortið til að átta sig á aðstæðum áður en lagt er á vegakerfið.

Umferdin.is

Nýi vefurinn, umferdin.is, mun leysa af hólmi hið vel þekkta færðarkort Vegagerðarinnar þar sem vegfarendur hafa kynnt sér aðstæður á vegakerfinu hingað til.

Nýi vefurinn er mun nútímalegri, færðarkortið er t.d. þysjanlegt, og mun þægilegra í notkun í snjalltækjum. Nýr vefur mun einnig gefa tækifæri til frekari framþróunar.