Í desember var bætt í grjótgarðinn við höfnina, meðfram Hafnarbrautinni á Hvammstanga.

Þetta er liður í framkvæmd sem fékk styrk frá Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða. Verkið felur í sér að gera öruggan göngustíg, með mögulegum pollum og köðlum, frá höfninni áleiðis að Selasetrinu til að tryggja öryggi og bæta upplifun ferðamanna jafnt sem heimafólks. Þessi grjótgarður er fyrsta skrefið í því verki.

Á síðustu árum hafa orðið breytingar á sjávarútvegi og hafnsækin starfsemi í Hvammstangahöfn minnkað, þó að hún sé enn til staðar. Ný tækifæri hafa orðið til með auknum ferðamannaiðnaði og hafnarsvæðið vaxandi ferðamanna- og frístundasvæði með samspili náttúru, dýralífs og nálægðar við hafið við margþætta þjónustu sem þar í boði er.


Mynd/Húnaþing vestra