Engar hefðbundnar guðsþjónustur verða í Siglufjarðarkirkju þessi jólin, en í dag kl. 17.00 verður send út á FM Trölla Aðventukveðja frá Siglufjarðarkirkju, þar sem fram koma Anna Hulda Júlíusdóttir, Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, Hörður Ingi Kristjánsson, Júlíus Þorvaldsson, Mikael Sigurðsson, Rodrigo J. Thomas, Sigurður Ægisson, Tryggvi Þorvaldsson og Þorsteinn B. Bjarnason.

Og 31. desember kl. 17.00 verður send út á FM Trölla Gamlársdagskveðja frá Siglufjarðarkirkju, í umsjón Rodrigo J. Thomas, Sigurðar Ægissonar og Þorsteins B. Bjarnasonar.

Útsendingartíðni FM Trölla er 103.7 MHz í Eyjafirði, Skagafirði og á Hvammstanga. Svo næst útvarpsstöðin út um allan heim á trolli.is.