Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum “Mínar síður”.

Greiðslukröfur vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og greiðsluseðlar sendir þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2021. Þegar álagning 2023 vegna tekna ársins 2022 liggur fyrir í júní/júlí n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 464 9100 eða í innheimta@fjallabyggd.is